keyboard_arrow_left
See all news
Recent News
14 Sep, 2017
keyboard_arrow_left
See all news
Viðskipting blómstra á IceFish 2017 eftir vel heppnaðar Tengslastundir
Tengslastundir á vegum IceFish, sem felur í sér að leiddir eru saman mismunandi aðilar frá fyrirtækjum sem tengjast sjávarútvegi, hafa notið mikilla vinsælda á yfirstandandi sýningu og er aðsóknin í Tengslastundirnar tvöfalt meiri en á seinustu sýningu árið 2014. Fyrir vikið hafa komist á mörg ný viðskiptatengsl og tengsl aðila sem hyggjast kanna nýja markaði.
í gær tóku tæplega hundrað manns frá 24 löndum þátt í Tengslastundunum, alls ríflega hundrað fundir.
Tengslastundir IceFish skapa aðstæður fyrir þátttakendur til að kynnast öflugum fyrirtækjum á vettvangi sem kallað hefur verið „Meet-the-buyer“ á ensku, eða „Hittu-kaupandann.“ þátttakendur í gær höfðu sérstaklega á orði að þetta hefði verið mjög jákvæð reynsla, og bættu við að þessir fundir, 20 mínútur hver, væru hagkvæmir bæði hvað varðar tíma og fjármuni og gerðu þeim kleift að hitta áhugasama kaupendur við kjöraðstæður.
Fundirnir voru skipulagðir af Nýsköpunarmiðstöð íslands, sem leiðir starfsemi Enterprise Europe Network (EEN) hérlendis, í samstarfi við Sector Group Maritime Industries & Services, sem er hluti af EEN.