Recent News
Smíða skip fyrir veiðar og eldi
MÃ¥løy Maritime Group (MMG) er fyrirtækjaklasi með ýmsum sérhæfðum framleiðendum innanborðs, þar á meðal skipahönnunarfyrirtækinu Skipskompetanse sem nýlega lauk samningum um ný skip sem verða smíðuð hjá Larsnes Mek Verksted, einni annasömustu skipasmíðastöð á svæðinu.
Útgerðin Naviera Orca frá Chile leitaði til Skipskompetance um hönnun á nýju 2.800 rúmmetra brunnskipi, 79 metra löngum bát sem verður með tækjabúnað af nýjustu gerð og engum útblæstri í lokuðum flutningi þar sem vatnið er hreinsað jafnóðum og fylgst grannt með ástandi þess.
„Nýja skipið verður í lykilhlutverki við að tryggja velferð fiskanna með lágmarks tilkostnaði,“ segir Ezequias Alliende, framkvæmdastjóri Naviera Orca.
„Skipið, tæknin, hagkvæmnin og stærðin eru nákvæmlega það sem við þurfum í þessari grein eins og er. þetta er sú tækni sem við þurfum í Chile.“
Annað skip sem pantað hefur verið frá Skipskompetanse og Larsnes Mek Verksted er Nord-Fugløy sem verður smíðað fyrir Roger Nilsen, en hann gerir út frá Nord-Lenange í Norður-Noregi.
þetta er nótabátur, hlaðinn nýjungum og hannaður með möguleika á því að flytja fiskinn sjófrystan eða unninn og frystan um borð, auk þess að hafa möguleika á því að flytja lifandi fisk í 400 rúmmetra geymaplássi.
Hönnunin á SK-3151 hefur verið aðlöguð að þörfum eigandans með Yanmar-aðalvél og 1000 kW/klst rafgeymi – þar sem fyrirkomulagið er hannað þannig að gert er ráð fyrir loftslagsáskorunum sem veiðiskip á norrænum slóðum geta staðið frammi fyrir í framtíðinni.
„Við höfum einu sinni áður tekið þátt í íslensku sjávarútvegssýningunni, með góðum árangri og stefnum á að mæta öflug til leiks á sýningu ársins með 10 af 15 aðildarfélögum okkar á staðnum. ísland er mikilvægur markaður fyrir mörg aðildarfyrirtækja okkar og þess vegna fullkomin staðsetning fyrir aðildarfélög okkar til að hitta bæði nýja og eldri viðskiptavini,“ segir Miriam Edler, framkvæmdastjóri MMG.
„MÃ¥løy Maritime Group vill efla hið frábæra fyrirtækjanet okkar í sjávarútvegi í kringum hafnarborgina MÃ¥løy, allt frá veiðarfæraframleiðendum og raftæknifyrirtækjum til skipasmíðastöðva, skipahönnuða og hafnarþjónustu. Við hlökkum virkilega til að taka þátt í þessari sýningu.“
Ef þú hefur áhuga á að sýna, styrkja, koma sem gestur eða flytja erindi á IceFish 2021, hringdu þá í +44 01329 825 335 eða sendu tölvupóst á info@icefish.is.
Sölumenn á íslandi: Birgir þór Jósafatsson S: +354 896 2277 birgir@icefish.is eða Bjarni þór Jónsson GSM: +354 896 6363 bjarni@icefish.is